08. febrúar 2010
Ályktun um strandveiðar
Á fundi sínum laugardaginn 6. febrúar samþykkti miðstjórn Frjálslynda flokksins eftirfarandi ályktun:
Miðstjórn Frjálslynda flokksins fagnar framkomnu frumvarpi sjávarútvegsráðherra um áframhald strandveiða enda er frumvarpið í anda stefnu Frjálslynda flokksins.
meira...
02. febrúar 2010
Fréttatilkynning frá Frjálslynda flokknum
Vegna heilsíðu auglýsingar frá Ólafi F. Magnússyni í Fréttablaðinu í morgun, vill Frjálslyndi flokkurinn árétta að Ólafur F. Magnússon er ekki í Frjálslynda flokknum og umrædd auglýsing er ekki á vegum F listans í borginni. Auglýsingin er sögð í nafni Borgarmálafélags F lista. Af því tilefni ítrekar Frjálslyndi flokkurinn að það félag hefur ekkert með Frjálslynda flokkinn að gera eða borgarmálafélag Frjálslynda flokksins í Reykjavík. Félag það sem Ólafur kallar „Borgarmálafélag F lista“ er einkahlutafélag sem Ólafur stofnaði á valdatíma sínum sem borgarstjóri til þess eins að færa til fjárstyrk af hálfu borgarinnar sem áður hefur jafnan runnið til Frjálslynda flokksins. Flokkurinn ítrekar einnig að hann einn hefur umráð yfir lista bókstafnum F þegar boðið er fram til alþingis- og sveitarstjórna. Það að Ólafur skuli sífellt kenna sig við lista bókstaf sem hann hefur engan umráðarétt yfir eru því blekkingar einar af hans hálfu.
meira...
19. janúar 2010
Ályktun um auðlindir í þjóðareign
Miðstjórn Frjálslynda flokksins, laugardaginn 16. janúar 2010.
Ályktun miðstjórnar um auðlindir í þjóðareign.
Frjálslyndi flokkurinn styður þá sjálfsögðu kröfu að auðlindir Íslands verði í þjóðareign. 
Einkaeign útgerða á óveiddum fiski í sjó verður aldrei sáttaleið.
Frjálslyndi flokkurinn fordæmir grímulausa hótun LÍÚ um að svipta sjómenn, fiskverkafólk og fjölskyldur þeirra tekjum til að knýja fram kröfu sína um eignarétt á Íslandsmiðum.
meira...
18. janúar 2010
Fréttatilkynning vegna auglýsingar Ólafs F. Magnússonar
Í tilefni af auglýsingu Ólafs F. Magnússonar um fund á vegum borgarmálafélags F-listans í Reykjavík vill Frjálslyndi flokkurinn taka fram að fundurinn er ekki boðaður af Frjálslynda flokknum og ekki heldur af borgarmálafélagi Frjálslynda flokksins. Fundurinn virðist vera boðaður af einkahlutafélagi skrásett á heimili Ólafs F. Magnússonar að Vogalandi 5, sem hann stofnaði í óþökk Frjálslynda flokksins og skírði „Borgarmálafélag F-lista.“ Frjálslyndi flokkurinn minnir á að Ólafur F. Magnússon hefur sagt sig úr Frjálslynda flokknum og er að best er vitað utan flokka sem borgarfulltrúi. Félag sem tengir sig við listabókstafinn F getur ekki verið stofnað af fólki utan Frjálslynda flokksins. Framboðs listi verður ekki borinn fram undir listabókstafnum F nema af Frjálslynda flokknum og með samþykki hans. Af fenginni reynslu eru engar líkur til þess að Frjálslyndi flokkurinn tengist í framtíðinni framboðsmálum Ólafs F. Magnússonar.
meira...
16. janúar 2010
Afnám verðtryggingar - Skuldavandi heimilanna
Stjórnmálaályktun miðstjórnarfundar Frjálslynda flokksins haldinn laugardaginn 16. janúar 2010.
- Skuldavandi heimilanna.
Frjálslyndi flokkurinn lagði fram tillögur til hjálpar skuldsettum heimilum fyrir síðustu kosningar. Ljóst er að leiðrétting höfuðstóls íbúðalána með afnámi verðtryggingar þarf að vera forgangsatriði.
Frjálslyndi flokkurinn lýsir yfir miklum áhyggjum af aðgerðarleysi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna vegna skuldavanda heimilanna.
Framkvæma þarf raunhæfar aðgerðir vegna fjárhagsvanda heimila og einstaklinga, hvort sem um er að ræða verð- eða gengistryggð lán. Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja eru komin í þrot. Svo er komið bankarnir eru einráðir um afkomu fjölskyldna og fyrirtækja með óbeinu samþykki stjórnvalda.
meira...
09. janúar 2010
Ályktun vegna ákvörðunar forseta Íslands um að vísa Icesave í þjóðaratkvæði
07.01.10.
Ályktun framkvæmdastjórnar Frjálslynda flokksins.
Framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins fagnar því að þjóðin fær tækifæri til þess að kjósa um mál sem varðar framtíð hennar um áratugi. Stjórnmálamenn á alþingi eiga að stíga skrefið til fulls og semja lög sem gefa þjóðinni rétt til þess að kveða upp sinn dóm í umdeildum málum.
Það á meðal annars við um íslenska kvótakerfið.
Allir stjórnmálaflokkar hafa á undaförnum árum lagt til, meðal annars í stjórnarskránefnd, að þjóðaratkvæðagreiðslur væru viðhafðar í auknum mæli, enda þjóðaratkvæðagreiðslur góður mælikvarði á lýðræðislegan vilja þjóðarinnar.
Þau auknu lýðréttindi ber að virða.
Það er óþolandi ósiður margra stjórnmálamanna hér á landi, að vera með hótanir um stjórnarslit ef framkvæma á þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeild mál.
Framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins telur eðlilegt þegar mál eru svo umdeild sem Icesave málið hefur verið, að forseti Íslands taki ákvörðun um að vísa slíku máli til þjóðarinnar. Íslendingar eru hvattir til að sýna vilja sinn í verki með mikilli þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem væntanleg er.
Íslenska þjóðin á þann sjálfsagða rétt að deilumál sem þetta sé borið undir dómstóla.
meira...
09. janúar 2010
Ályktun til stuðnings löggæslu og landhelgisgæslu
Reykjavík 14. ágúst
Ályktun framkvæmdastjórnar Frjálslynda flokksins um þróun lögreglumála á Íslandi
Frjálslyndi flokkurinn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í málefnum löggæslu og landhelgisgælsu á Íslandi. Frjálslyndi flokkurinn furðar sig á þeirri staðreynd að það virðist að jafnvel í svo kölluðu góðæri síðustu ára hefur löggæsla og landhelgisgæsla verið í fjársvelti.
Frjálslyndi flokkurinn átelur harðlega kjarkleysi og skilningsleysi núverandi ríkisstjórnar í þessum málaflokkum. Áframhaldandi niðurskurður sem boðaður hefur verið til löggæslumála á Íslandi af ríkisstjórnarflokkunum er algjörlega óásættanlegur. Frjálslyndi flokkurinn hefur alltaf haft það á stefnuskrá sinni að löggæslumál skuli ætíð fá það fjármagn sem til þurfi til þess að öryggi borgarana sé tryggt. Svo hefur varla verið síðustu ár en nú keyrir um þverbak. Óhætt er að segja að við Íslendingar fljótum að feigðar ósi í þessum málaflokki.
Skipulögð glæpastarfsemi færist í aukana á Íslandi og þessi heimur verður sífellt harðari og glæpamenn sífellt ósvífarnari. Skýrasta dæmið er nú nýlega þegar ungir drengir eru taldir hafa unnið skítverk fyrir skipuleg glæpasamtök og svikið út tugi milljóna af opinberu fé. Talað er um að þessir drengir hafi svikið um 40 – 50 milljónir út úr Íbúðalánasjóði sem er mjög nálægt þeirri upphæð sem lögreglunni er gert að skera niður í ár.
Frjálslyndi flokkurinn lýsir yfir stuðningi við störf lögreglunnar og landhelgisgæslunnar nú sem áður. Flokkurinn krefst þess að stjórnvöld tryggi þessum málaflokkum nú þegar fé svo öryggi íslenskra borgara sé tryggt. Frjálslyndi flokkurinn hvetur stjórnvöld til þess að gera nú þegar heilstæða greiningu á fjárþörf löggæslunnar og landhelgisgæslunnar í landinu og horfa til framtíðar, eitthvað sem stjórnmálamenn hafa því miður ekki gert hingað til.
Stjórnvöldum væri nær að styðja við bakið á lögreglumönnum og forystu lögreglunnar á Íslandi en ekki hrekja lögreglumenn úr starfi eins og gerðist í tíð Sjálfstæðisflokksins þegar fyrrum lögreglustjóri á Suðurnesjum var hrakinn úr embætti þrátt fyrir mjög góðann árangur í starfi.
meira...
09. janúar 2010
Ályktun miðstjórnar
Miðstjórnarfundur Frjálslynda flokksins, haldinn í Reykjavík 25. sept. 2009, ályktar eftirfarandi:
1. Miðstjórn Frjálslynda flokksins skorar á ríkisstjórnina að bregðast við miklum og vaxandi fjárhagsvanda heimila og fyrirtækja sem ekki ráða lengur við skuldir sínar. Frjálslyndi flokkurinn minnir á tillögur sínar frá s.l. vetri, um frystingarleið þar sem greiðsla hefði miðast við greiðslubyrði frá 1. janúar 2009, sem hefði létt greiðslubyrði og myndað grunn til afskriftar höfuðstóls, vaxta og gengishækkana lána. Hann minnir einnig á tillögur um forleigurétt skuldara í þrjú ár til að tryggja stöðu fjölskyldna og koma í veg fyrir húsnæðishrakningar.
2. Þessa dagana er ríkisstjórnin að vinna að stórfelldum niðurskurði útgjalda og skattahækkunum. Frjálslyndi flokkurinn fellst á að niðurskurður fjárlaga við núverandi kringumstæður sé nauðsynlegur, þótt hlífa þurfi viðkvæmustu þáttum velferðarkerfisins að því er varðar sjúka, aldraða og öryrkja. Miklar skattahækkanir á almennar launatekjur eru þó ekki vænlegar til árangurs og ber að varast þær.
3. Í hugmyndafræði ríkisstjórnarinnar til bjargar þjóðfélaginu hefur verið horft framhjá mikilvægasta þættinum, þ.e. aukinni framleiðslu og gjaldeyrisöflun. Það þarf að skapa störf og auka bjartsýni og tiltrú í þjóðfélaginu á ný. Auknar tekjur og aukin atvinna er það sem leysir fjárhagsvandann.
4. Frjálslyndi flokkurinn telur, að stórauka þurfi fiskveiðiheimildir sem geta fært milljarðatugi í ríkiskassann á skömmum tíma. Þessi aðgerð er sú fljótvirkasta og eðlilegasta til að slá á atvinnuleysi og auka útflutningstekjur. Tryggja verður öryggi borgaranna og efla baráttu gegn glæpum með góðri löggæslu og tryggri starfssemi landhelgisgæslunnar.
5. Frjálslyndi flokkurinn varar við óhóflegum áhrifum Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á íslenskt efnahagslíf sem m.a. hefur komið í veg fyrir lækkun vaxta. Ríkisstjórnin verður með öllum ráðum að verja hagsmuni Íslendinga í samskiptum við aðrar þjóðir. Frjálslyndi flokkurinn er enn sem fyrr mótfallinn aðild Íslands að Evrópusambandinu.
6. Frjálslyndi flokkurinn hvetur flokksmenn til að huga nú að þátttöku í kosningum til sveitarstjórna, bæði í nafni Frjálslynda flokksins og í samstarfi við aðra þar sem möguleikar eru á slíku, án þess að grundvallarmál flokksins verði fyrir borð borin.
meira...