3. febrúar 2010
Einkahlutafélag Ólafs F. Magnússonar sendir frá sér tilkynningu - nánar
Einkahlutafélag Ólafs F. Magnússonar sem hann kallar
„Borgarmálafélag F-listans“ sendi frá sér tilkynningu í dag. Þar koma fram yfirlýsingar út og suður sem ekki verða eltar frekar. Það er eigi að síður nauðsynlegt að leiðrétta eftirfarandi: Talað er um að Borgarmálafélag F-listans í Reykjavík hafi verið starfandi frá 2002. Það félag sem Frjálslyndi flokkurinn hefur hingað til vísað í...
...er félag sem Ólafur stofnaði meðan hann var borgarstjóri og nefnt er „Borgarmálafélag F-listans.“ Það félag er stofnað árið 2008, ekki 2002, og inn á reikning þessa félags rann styrkur sem ætlaður var Frjálslynda flokknum. Á þessum tíma hafði Ólafur enn eina ferðina sagt sig úr Frjálslynda flokknum. Stofnun þessa félags getur hver sem er sannreynt með útskrift úr firmaskrá ríkisskattstjóra. Félag þetta sótti aldrei um inngöngu í Frjálslynda flokkinn og forysta flokksins hafði enga vitneskju um stofnun þess. Hvað varðar fullyrðingar um að sameiginlegur fundur kjördæmaráðanna hafi lýst yfir stuðningi við Ólaf er það líka rangt. Eftir því sem næst verður komist var boðað til fundar í nafni kjördæmafélaganna með nokkura klukkutíma fyrirvara, sem er ólögleg fundarboðun. Á fundinn mættu fáeinir einstaklingar, þar á meðal fólk sem ekki er vitað til að eigi sæti í stjórn kjördæmafélanna. Að lokum er rétt að ítreka að Ólafur sagði sig úr Frjálslynda flokknum og þar með F-listanum á fundi borgarstjórnar (enn eina ferðina) fyrir nokkru síðan. Hann er því utan flokka í borgarstjórn Reykjavíkur.